Upphafssíða
FERÐAMANNAÞJÓNUSTA
Gisti- og fundaraðstaða
Útgáfur
Námskeið
Rannsóknir
Miðlun
Bókhlaða
Saga Reykholts
Saga Snorrastofu
Starfsmenn
Reykholtskirkja
Heimasíða Reykholts
Tenglar
 

 

 

 

Gestastofa - þjónusta við ferðamenn

 

Sýningar

Á döfinni

Gisti- og

fundaraðstaða

Kort

 

Aðgangseyrir: 700 krónur

 

Fyrir hópa:      600 kr

 

Frítt fyrir börn í fylgd með fullorðnum

 

Sími: 433 8008  og 892 1490.

 

Gestastofa Snorrastofu í Reykholti annast móttöku ferðamanna og veitir upplýsingar um sögu staðarins.

 

Snorrastofa býður upp á fyrirlestra um Snorra Sturluson, verk hans og sögu staðarins á ýmsum tungumálum.

 

Gestastofa annast tónleikahald í Reykholtskirkju.

 

Gestastofa annast útleigu húsnæðis á vegum Snorrastofu í Reykholti.

 

Í tengiálmu milli Snorrastofu og Reykholtskirkju er minjagripaverslun með handgerða listmuni, bækur

og póstkort.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 

Gestastofa í Reykholti

Móttökustjóri:

Dagný Emilsdóttir

 

Sími: 433 8008  og 892 1490 

 
Netföng:

gestastofa@snorrastofa.is

 

Opnunartímar:

1. maí til 30. september: Alla daga vikunnar kl. 10:00-18:00
1. október til 30 apríl: Opið virka daga kl. 10:00-17:00

Á öðrum tímum eftir samkomulagi.

 

Reykholt í Borgarfirði er eitt af fornum höfuðbólum Íslands og menningarsetur í fortíð og nútíð. Saga Íslands tengist Reykholti órofa böndum. Þekktasti rithöfundur Íslendinga um allan heim er óefað sagna-ritarinn og skáldið SNORRI STURLUSON (1179-1241). Hann var einnig höfðingi mikill og stjórnmálamaður og talinn einn auðugasti maður Íslands á Sturlungaöld, en það tímabil Íslandssögunnar er litað af miklum erjum og blóðugum bardögum og var Snorri drepinn í Reykholti 1241 að undirlagi fyrrverandi tengdasonar, Gissurar jarls.

 

Snorri skrifaði HEIMSKRINGLU, sögu Noregskonunga, EDDU ómetanlegar heimildir um norræna goðafræði og kveðskap, og líklega einnig EGILS SÖGU SKALLA-GRÍMSSONAR. Meðal elstu varðveittra mannvirkja á Íslandi er Snorralaug og stokkar sem veita vatni í hana úr hvernum Skriflu.

 

Húsnæði Snorrastofu er sambyggt Reykholtskirkju og var formlega tekið í notkun á Reykholtshátíð 29. júlí árið 2000. Höfuðviðfangsefni stofnunarinnar er að sinna rannsóknum og kynningu á miðaldafræðum, ásamt því að sinna sögu Borgarfjarðarhéraðs. Gott bókasafn og rannsóknaraðstaða er fyrir hendi í húsnæðinu, ásamt íbúð fyrir gestafræðimenn. 

 

Reykholtshátíð er haldin árlega í júlí, í tengslum við Kirkjudag Reykholtskirkju. Á hátíðinni er haldin hátíðarmessa og fluttir fyrirlestrar. Á tónlistarhátíð er flutt fjölbreytt klassísk tónlist á fernum tónleikum.

Stjórnandi tónlistarhátíðar er Steinunn Birna Ragnarsdóttir.